top of page
"Together we build an empire"

Business BAZAAR

Sérhvert heimsveldi var reist stein fyrir stein!

Styttri leiðin er ekki í boði þegar eitthvað stórkostlegt er í uppbyggingu!

Við höfum þekkinguna og reynsluna svo þú náir árangri!

SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA 

Saman erum við sterkari!

Við sérhæfum okkur í sölu- og markaðsmálum, verkefnastjórnun, fjármálum, rekstrargreiningu og viðskiptaþjálfun. Þú getur valið að spyrja sérfræðinga okkar í síma eða netspjalli, nýtt þér sérfræðiþekkingu okkar í smærri og stærri verkefnum eða fengið sérfræðinga okkar í tímabundin verkefni til þín til skamms eða langs tíma. Við vitum að sveigjanleiki veitir sóknartækifæri til framtíðar.

Við höfum þekkinguna og reynsluna svo þú náir árangri!

UMBOÐSMAÐUR VÖRU OG VIÐSKIPTA

Láttu heiminn vita af vörunni þinni!

Sem umboðsmenn vöru og viðskipta erum við tilbúin að styðja þig ef þú þarft að koma vörunni þinni á markað. Með því að deila yfir 20 ára reynslu á smásölumarkaði og stjórnendareynslu af því að vinna fyrir mörg af þekktustu og verðmætustu vörumerkjum heims komum við á tengslum milli kaupenda og seljenda og tengjum saman vörumerki við verslanir. Það skiptir ekki máli hvort þú vilt auka sýnileika þinn eða stækka sölunet þitt á núverandi markaði eða á heimsvísu, að ráða umboðsmann getur verið mjög dýrmætt á vegferð viðskiptaþróunar þinnar. Að auki getum við hjálpum þér að byggja upp söluherferðir og sölu tilboð og ráðlagt þér varðandi vöruflokkastjórnun til að hámarka sölutækifærin fyrir vöruna þína. Við erum tilbúin að starfa sem umboðsmenn fyrir þitt fyrirtæki til að tryggja að vara þín eða þjónusta fái verðskuldaða athygli.

AUKINN STUÐNINGUR

Þú hefur það sem þarf!

Við höfum fulla trú á þér. Við vitum að þú ert á leiðinni í átt að þínu næsta frábæra afreki. Viðskiptavinir okkar þurfa mismunandi stuðning og það er það sem við elskum við starfið okkar.

Við höfum notið þeirra forréttinda að aðstoða viðskiptavini okkar við að ná hagnaði á fyrsta rekstrarári, endurskipuleggja fyrirtæki frá tapi í hagnað með góðum árangri, auka sölumöguleika, auka stöðugar tekjur, uppsetning á sölukerfum, byggja upp arðbæra verðlagningu á þjónustu, innleiða hvatakerfi, bæta sjóðstreymi fyrirtækja og takmarka áhættu . Þá erum við reiðubúin til að taka að okkur stjórnarsetu þar sem þekking okkar og reynsla af viðskiptamarkaðnum nýtist. Láttu okkur vita hvernig við getum hjálpað þér og með ánægju munum við finna sérsniðnar lausnir sem hjálpa þér á ferð þinni í átt að markmiði þínu.

TÍMABUNDNIR SAMNINGAR

Við erum stolt af því að vera hluti af „Gig Economy“!

Við færum þér þessa tegund stuðnings til að þú getir haldið áfram á framtíðar vegferð þinni. Nútíma umhverfi fyrirtækja krefst aukins sveigjanleika. Þú verður að aðlagast betur og hraðar, hafa aukna snerpu og ná markmiðunum hraðar. Að bæta hæfileikaríkum starfsmanni tímabundið við liðsheild þína gæti skapað aukið virði fyrir fyrirtækið. Jákvæður ávinningur er sá að þú færð leikmann til liðs við teymi þitt sem er sérfræðingur á sínu sviði og tilbúinn til að skapa þá niðurstöðu og ná þeim árangri sem þú vilt ná. Tímabundnar lausnir geta veitt þér þann viðbótar kraft sem þú þarft til að halda áfram og ná markmiðum þínum enn hraðar.

Eftir hverju ertu að bíða? Við erum að bíða eftir þér!

STJÓRNARSETA

Fáðu þekkinguna inn í stjórn fyrirtækisins!

Nútíma viðskiptaumhverfi kallar á fjölbreyttari samsetningu stjórnarmanna þar sem áskoranir í umhverfi samtímans krefjast þess að hver stjórnarmaður nýti lykilhæfni sína og stjórnunarreynslu til fulls.

Áratuga stjórnunarreynsla, reynsla í stofnun fyrirtækja, rekstri, nýsköpun, fjármálum, sölu- og markaðsmálum, setu í framkvæmdastjórn og að vera starfandi framkvæmdastjóri ásamt menntun í stjórnarsetu getur styrkt stjórn í þínu fyrirtæki. 

FYRIRLESTRAR

Fjárfestu í betri framtíð!

Hvatning til að gera betur í dag en í gær er nauðsynleg til að kveikja þann neista sem þarf að búa innra með okkur til að ná auknum árangri. Skýr framtíðarsýn, markmið og sú upplifun að það sem við gerum í dag hafi áhrif á betri framtíð gerir sérhvert skref markvissara. Við veitum stjórnendum og teymum þeirra hvatningu til að vera besta útgáfan af sjálfum sér og hvatningu til framtíðarávinnings.

SPURÐU SÉRFRÆÐINGINN

Spurðu sérfræðinga okkar!

Stundum verður þú bara að biðja sérfræðinginn um smá aðstoð til að geta náð einhverjum frábærum árangri. Við erum reiðubúin til að styðja þig með netfundi eða símleiðis. Við höfum til staðar sérfræðinga í sölu, markaðssetningu, verkefnastjórnun, fjármálum og viðskiptaþjálfun.

Bókaðu sérfræðinginn þinn núna.

bottom of page