top of page
"Everyone deserve to be a rockstar in their own life"

Business BAZAAR

STJÓRNENDAÞJÁLFUN

Við teljum að allir eigi skilið að vera rokkstjarna í eigin lífi!

Við styðjum viðskiptavini okkar til að verða besta útgáfan af þeim sjálfum og ná hámarks árangri.

Það getur verið kalt á toppnum!

Margir af viðskiptavinum okkar velja ósýnilega viðskipta- og stjórnendaþjálfun til að styðja þá í störfum sínum. Það skiptir ekki máli hvort þú ert reyndur stjórnandi, nýr í stjórnunarstöðu eða ef þú vilt gerast stjórnandi, þá styðjum við þig alla leið. 

Um ein milljón eintaklinga, teyma, leiðtogar fyrirtækja og samtaka hafa notið góðs af því að vera þjálfaðir af CoachU þjálfuðum þjálfurum í heiminum.  

TEYMISÞJÁLFUN

Þegar krafturinn er sameinaður þá gerist eitthvað magnað!

Öll fyrirtæki óska ​​eftir árangri og stundum jafnvel enn meiri árangri. Sú hæfni sem mannauðurinn býr yfir gefur tækifæri til að ná enn lengra. Fjársjóðurinn verður til þegar allir eru með sama hugarfar og deila sömu sýn til að fara beint á toppinn. Við hjálpum viðskiptavinum okkar að þróa leiðir til hámarksárangurs.

TEYMISGREINING

Ertu með rétta teymið?

Rétt samsetning mannauðs, hugarfars og hæfni, er forsenda árangurs. Við notum viðurkennt hlutlaust greiningartæki við greiningu teyma og samsetningu þeirra. Mörg af stærstu fyrirtækjum heims nýta slíkar greiningar við þróun mannauðs. Greiningin varpar skýrri mynd á samsetningu þíns teymis, fjölbreytileika þess og styrkleika.

Öll teymi þurfa rétta samsetningu hugarfars og hæfni til aukinnar verðmætasköpunar fyrir fyrirtækið þitt.

Við hlökkum til að fylgja þínu fyrirtæki inn í framtíðina.

LEIÐTOGAÞJÁLFUN

Þegar draumar rætast!

Það er óskastaða að geta veitt góðum starfskröftum tækifæri til að eflast í starfi og vaxa í nýjar stjórnunarstöður. Það er mikilvægt að styðja nýja stjórnendur í fyrstu skrefunum sínum í nýju hlutverki, hvetja þá og veita þeim sjálfstraust til að hvetja aðra og verða frábær leiðtogi. Við notum viðurkennt hlutlaust leiðtogamat til að auka leiðtogafærni. Við vinnum með nýjum stjórnendum svo hæfni þeirra endurspeglist í auknum árangri og ánægju liðsheildarinnar. 

Enginn fæddist rokkstjarna!

SÖLUÞJÁLFUN

Einstök leið og óvenjuleg árangur!

Hvert sölutækifæri er einstakt. Við þjálfum söluteymi til að geta gripið tækifærin og breytt þeim í sölu. Saman skilgreinum við verðmætasta markmiðið, hvernig á að framkvæma það, loka sölunni og samningum, mæta markmiðum og fá óvenjulegan árangur.

Að þekkja styrk þinn, veikleika, tækifæri og ógnanir mun hjálpa þér að ná árangri. Saman þróum við afkastamiklar venjur sem gerir söluteymi þínu kleift að ná markmiðum sínum og fara fram úr væntingum.

Saman getum við búið til lið af rokkstjörnum!

JAFNVÆGI MILLI VINNU OG EINKALÍFS

Vertu forstjóri lífs þíns!

Það er kominn tími á að þú verðir forstjóri lífs þíns í lífi, leik og starfi. Vertu viss um að þú sért að gera það sem hæfni þín nýtist sem best og enginn annar getur leyst fyrir þig. Eitthvað fylgir starfinu, eitthvað fylgir þeim væntingum sem til okkar eru gerðar. En það sem mestu máli skiptir er að skoða hverju sé skynsamlegt að útvista. 

Það er ósk okkar að þú verðir framúrskarandi forstjóri lífs þíns!

„Be a CEO“ prógramið er tækifæri til að efla gagnrýna hugsun, ráðstafa tíma þínum af kostagæfni og stýra lífi þínu í átt til árangurs og jafnvægis.

Það er ekki eftir neinu að bíða. Það er komið að þér að vera forstjóri lífs þíns. Sæktu um starfið strax í dag!

bottom of page