top of page
"Your brand needs a signal"

Business BAZAAR

Láttu heiminn vita af vörunni þinni!

Hnattvæðing veitir tækifæri til viðskipta án landamæra!

Saman getum við aukið tækifæri fyrir vöruna þína á alþjóðamarkaði!

VÖRUMERKI FYRIR KRÖFUHARÐA

Við tengjum saman vörur og viðskiptavini!

Við vinnum með spennandi hágæða vörumerki og leitum tækifæra á nýjum mörkuðum. Við rekum Heildverslun með vöruhúsi á Íslandi þar sem í boði eru vörur sem skara framúr fyrir kröfaharða viðskiptavini. Við erum aðilar að Spánsk-íslenska viðskiptaráðinu. Þá deilum við 20 ára reynslu á FMCG markaði.

UMBOÐSMAÐUR VÖRU OG VIÐSKIPTA

Láttu heiminn vita af vörunni þinni!

Sem umboðsmenn vöru og viðskipta erum við tilbúin að styðja þig ef þú þarft að koma vörunni þinni á markað. Með því að deila yfir 20 ára reynslu á smásölumarkaði og stjórnendareynslu af því að vinna fyrir mörg af þekktustu og verðmætustu vörumerkjum heims komum við á tengslum milli kaupenda og seljenda og tengjum saman vörumerki við verslanir. Það skiptir ekki máli hvort þú vilt auka sýnileika þinn eða stækka sölunet þitt á núverandi markaði eða á heimsvísu, að ráða umboðsmann getur verið mjög dýrmætt á vegferð viðskiptaþróunar þinnar. Að auki getum við hjálpum þér að byggja upp söluherferðir og sölu tilboð og ráðlagt þér varðandi vöruflokkastjórnun til að hámarka sölutækifærin fyrir vöruna þína. Við erum tilbúin að starfa sem umboðsmenn fyrir þitt fyrirtæki til að tryggja að vara þín eða þjónusta fái verðskuldaða athygli.

SPURÐU SÉRFRÆÐINGINN

Spurðu sérfræðinga okkar!

Stundum verður þú bara að biðja sérfræðinginn um smá aðstoð til að geta náð einhverjum frábærum árangri. Við erum reiðubúin til að styðja þig með netfundi eða símleiðis. Við höfum til staðar sérfræðinga í sölu, markaðssetningu, verkefnastjórnun, fjármálum og viðskiptaþjálfun.

Bókaðu sérfræðinginn þinn núna.

bottom of page